top of page
  • Writer's pictureÁgústa Sigrún Ágústsdóttir

Þrýstipunktar í markþjálfun

Updated: Jan 24, 2022

Ég er oft spurð um hvernig markþjálfunarsamtal fari fram.


Fyrsti tíminn er oft frír prufutími til þess að meta hvort markþeginn og markþjálfinn séu rétta teymið til að vinna saman. Ef svo er, gera aðilar með sér skriflegt samkomulag um samstarf, fyrirkomulag og umgjörð samvinnunar. Siðreglur vottaðra markjálfa kveða á umtrúnaður og fleiri ákvæði sem gagnlegt er að vita fyrir samstarfið. Markþeginn hefur alltaf rétt á að hætta í markþjálfuninni ef hann vill, án skýringa, og fá endurgreidda þá tíma sem eftir eru


Að byrja samstarf með markþjálfa er spennandi ferðalag. Það krefst ekki sérstaks undirbúnings að mæta í fyrsta markþjálfunartímann en það getur stuðlað að því að markþeginn fái leifturstart.

Því sendi ég venjulega nýjum markþegum svokallaða þrýstipunkta fyrir fyrsta samtal til þess að koma kollinum af stað. Þrýstipunktarnir eru áleitnar spurningar á borð við:

  • „Hver er stærsta persónulega áskorunin sem þú stendur frammi fyrir núna?”

  • „Hvaða vandamál virðist þér vera óleysanlegt í augnablikinu?”

  • "Hvað er það sem frestast ítrekað að komast í framkvæmd hjá þér?"

Markþeginn velur svo það umræðuefni sem er mest aðkallandi, jafnvel það sem virðist óyfirstíganlegt eða þvælist reglulega fyrir eða fær frestunarafgreiðslu.


Svo þarf að komast að því hvaða áhrif það er að hafa á líðan og lífsgæði markþegans. Samtalinu vindur svo fram og markþjálfinn spyr hverju það myndi breyta ef markþeginn fyndi lausnir og hvaða áhrif það hefði til batnaðar.


Þá getur ferðalagið hafist. Ferlið er bæði krefjandi og skapandi samtal sem stuðlar að auknum persónulegum þroska og betri árangri í lífi og starfi. Lausnin er alltaf markþegans, en markþjálfinn hjálpar til við að spegla, umorða og framkalla það sem markþeginn er að fást við.


Gott er að leiða strax hugann að takmarkinu. Ég spyr mína markþega að því hvað væri góður árangur að þeirra mat að samstarfi loknu. Ég býð þeim að þiggja áskoranir frá mér, jafnvel verkefni. Ég býð þeim að stækka sig og teygja til að virkja árangur sem viðhelst og verður sjálfbær í framhaldinu.


Í eðli sínu aðstoðar markþjálfinn við skilgreina hvað virkilega skiptir markþegann máli og hvers vegna - að finna kjarnann. Markþjálfun er kröftugt verkfæri til að framkalla viskubrunninn og tengir markþegann betur við innsæi sitt.


Sem markþjálfi geri ég ráð fyrir að sá sem kemur í markþjálfun hafi valið það til að auðga líf sitt enn frekar. Að viðkomandi taki þátt í samstarfinu af samviskusemi og sé fullur eldmóðs og tilbúinn til að gera breytingar til að ná markmiðum sínum. Stundum er markþjálfun einfaldlega valin til að hjálpa markþeganum að rúlla hlutum á stað, fjarlægja hindranir, finna farveg og virkja athafnir. Markþjálfunin hjálpar þá til við að hugsa sig í gegnum flókið verkefni eða undirbúa sig fyrir mikilvægan fund.


Umfram allt þarf að vera gaman. Léttleikinn er smurning á ferlið, algerlega ómissandi.


Markþjálfinn heldur svo samtalinu gangandi með krefjandi spurningum, umorðar og dregur saman það sem markþeginn er að segja. Í farteskinu hefur markþjálfinn allskonar verkfæri til að markþeginn finni sína leið. Hann hvetur markþegann til dáða, heldur honum við efnið og samgleðst.


Hittumst heil.


Related Posts

See All
bottom of page