top of page

Ágústa Sigrún 

Ætlarðu að skipta um starfsvettvang?
Ertu að leita að vinnu?
Markþjálfun hjá mér getur stutt þig í því ferli.
About
professional-certified-coach-pcc.png
Strength Profiler_logo.JPG

Markviss þjálfun til að virkja kjarnorku

Í markþjálfun er unnið með styrkleika einstaklingsins til að hámarka árangur. Ferlið er bæði krefjandi og skapandi samtal sem stuðlar að auknum persónulegum þroska og betri árangri í lífi og starfi.

 

Ætlarðu að skipta um starfsvettvang? Ertu í atvinnuleit?  Þá gæti markþjálfun hjá mér stutt þig í því ferli.

Í mannauðsmálum hef ég  víðtæka reynslu af því að stýra faglegu ráðningarferli og veita stjórnendum ráðgjöf á því sviði. Sú reynsla kemur sér vel í markþjálfun því ég vinn mikið með markþegum sem eru að hugsa um að skipta um starf eða jafnvel starfsvettvang eða vilja skoða ný atvinnutækifæri. Það eru oft einstaklingar sem eru að leita að starfi þar sem styrkleikar þeirra fá betur að njóta sín.

 

Í slíku samstarfi fer fram kjarngóð vinna við að tengja sig við persónuleg gildi, greina styrkleika og gera áætlun, skref fyrir skref.

​Samhliða býð ég aðstoð við að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtal, rýni á gögnum, ferilskrám og kynningarbréfum.

Markþjálfun ...

✓  Aðstoðar þig við að skilgreina hvað virkilega skiptir þig máli og hvers vegna -- að finna kjarnann.
✓  Leggur fyrir þig kröftugar og krefjandi spurningar sem færa þig úr stað og stuðla að varanlegum árangri.
✓  Vinnur með styrkleika þína svo hæfileikar þínir fái að njóta sín til fulls.
✓  Hjálpar þér að rúlla hlutum á stað, finna farveg og virkja þig til athafna.
✓  Framkallar viskubrunninn þinn og tengir þig við innsæið.

Samtalstækni markþjálfunar nýti ég á hverjum degi. Spurningatæknin fylgir manni við dagleg störf.

 

Ég er PCC (Professional Certified Coach) vottaður markþjálfi frá því 22.02.2022 og hef tæplega 600 markþjálfunartíma í reynslubankanum. 

Ég vinn sem sagt mest með markþegum sem eru að takast á við breytingar eða vilja brýna sig á einhvern máta. Vilja komast inn að kjarnanum og vinna með hann svo að kjarnorkan virkist. Það getur verið góð leið á kynnast styrkleikum sínum aftur með styrkleikagreiningu frá Strengths Profile sem hjálpar til við að staðsetja sig og hafa að leiðarljósi.

Margir starfsmenntasjóðir stéttarfélaga endurgreiða kostnað sem tengist markþjálfun. VR endurgreiðir til að mynda allt að 12 tímum af starfstengdri markþjálfun á ári. 

 

PCC Certificate.JPG

Umsagnir

Upright Display Showcase Cooler ( Air Cooling, 0° - 10 °) (4)_edited.png
Björn Ingi Knútsson

 

Ég get mælt með Ágústu Sigrúnu sem markþjálfa af heilum hug. Ég sótti tíma hjá henni 2015-2016 sem gerðu mér ákaflega gott. Tímarnir voru vel skipulagðir, þeir voru áskorun í mínu tilfelli en fagleg nálgun hennar gerði þessa tíma einstaka.

Upright Display Showcase Cooler ( Air Cooling, 0° - 10 °) (4)_edited.png
Ásta Bjarnadóttir​

I have been a coachee of Agusta‘s and I can wholeheartedly recommend her to anyone looking for a professional, knowledgeable, positive, and thoroughly likable coach to work with. Her background in human resources makes her especially valuable to anyone who needs a sounding board on people and organization-related issues. She has excellent questioning and communication skills and really helps you to think about things in a new way. Good luck to you!

Upright Display Showcase Cooler ( Air Cooling, 0° - 10 °) (4)_edited.png
Sonja Scott
People & Culture CCEP Iceland

 

 

Mæli með Ágústu allan daginn og alla daga. Besta fjárfesting sem ég gerði á þessu ári. Sá og fann árangur strax eftir fyrsta tímann.

 

Upright Display Showcase Cooler ( Air Cooling, 0° - 10 °) (4)_edited.png
Þórir Jóhannsson

Þakka þér Ágústa fyrir að þjálfa mig við að undirbúa prufuna mína. Þú hjálpaðir mér í nálgun minni, að meta styrkleika mína og horfast í augu við ótta minn. Bakgrunnur þinn í tónlist hjálpaði greinilega mikið.
Ég get aðeins mælt eindregið með Ágústu Sigrúnu Ágústsdóttur sem ACC þjálfara 😊

Pistlar um mannauðsmál

bottom of page