Ferilskráin mín
Árið 2014 lauk ég meistaranámi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og markþjálfun á sama tíma. Þann 22.02.2022 fékk ég PCC vottun hjá International Coach Federation (ICF) sem þýðir að ég er Professional Certified Coach með um 600 tíma í reynslubankanum..
Ég hef unnið við mannauðsstjórnun og ráðgjöf síðan árið 2007, lengst af í ferðageiranum. Síðastliðin 8 ár hef ég unnið sjálfsætt sem mannauðsráðgjafi, fræðslustjóri og markþjálfi.
Ég er með nokkra fasta samninga við fyritæki sem ég sinni reglulega og er þeirra mannauðsstjóri.
Í mannauðsmálum hef ég víðtæka reynslu af því að stýra faglegu ráðningarferli og veita stjórnendum ráðgjöf á því sviði. Sú reynsla kemur sér vel í markþjálfun því ég vinn mikið með markþegum sem eru að hugsa um að skipta um starf eða jafnvel starfsvettvang, Einstaklingar sem efla sig í starfi, brýna sig eða pússa eða finna nýja fjöl.
Ég býð upp á úrlestur styrkleikagreininga Strengths Profile. Rannsóknir sýna að þegar við notum styrkleika okkar erum við ánægðari, komum meiru í verk og erum líklegri til að ná markmiðum okkar.
Helsti styrkleiki minn þessa stundina skv. styrkleikagreiningunni er ADVENTURE, sem þýðir að ég hræðist ekki að taka áhættu og hef gaman af því að stíga út fyrir þægindahringinn. Annar styrkleiki sem er í reglulegri notkun er CATALYST, sem þýðir að ég nýt þess að hvetja aðra til dáða og sjá þá ná árangri með því að láta hluti gerast.
Hef einnig orðið mér úti um réttindi til að framkvæma og greina persónuleikapróf, er vottaður Predictive Index® Analyst.
Sáttamiðlun eru verkefni sem ég tek jafnframt að mér, eftir að ég lauk námi í sáttamiðlun, þá helst hvað varðar samskipti og ágreining á vinnustöðum. ég er meðlimur í SÁTT, félagi sáttamiðlara.
Fararstjórn og leiðsögn eru líka verkefni sem ég tek að mér reglulegaog fer með hópa til Ítalíu, Slóveníu og Króatíu. ég er menntaður leiðsögumaður. Í kófinu stýrði ég vinsælum sýndarferðalögum fyrir Heimsferðir.
Flandrr ferðamiðstöð er afsprengi af þessari ferðaþörf
Kjarninn minn er hins vegar í tónlist, því ég er menntuð söngkona og söngkennari.
Söngreynsla
Söngur
Íslenska Óperan - Káta ekkjan í leikstjórn Andrésar Sigurvinssonar 1997 Hlutverk: Frou-Frou
Íslenska Óperan - Madama Butterfly í leikstjórn Halldórs E. Laxnes 1996 Hlutverk: frænka
Önnur hlutverk: Kórsöngvari í Otello, Lucia di Lammermoor, Sardasfurstynjan, Carmina Burana og La Bohéme
Frú Emilía - Kórsöngvari í Rhodymenia Palmata eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
Söngferðalag 1996 til Norðurlandanna og til Lissabon 1998
Óperusmiðjan - Kórsöngvari í Suor Angelica og La Bohéme eftir Puccini
Upptökur á geisladiskum
Hittumst heil - lög Ágústs Péturssonar, útgefinn 2001 - Ýmis lög á diskinum ásamt umsjón með útgáfu og kynningu.
Óratórían ELÍA eftir Mendelssohn, útgefinn 2001 - Hlutverk drengsins
Gömul vísa um vorið - lög Gunnsteins Ólafssonar 2000 - lögin: Tálsýn og Vertu
Blítt lét sú veröld - lög Sigfúsar Halldórssonar 1996 - lögin: Við Vatnsmýrina og Íslenskt ástarljóð
Stjörnubjart - jólalög og vetrartónlist, útgefinn 2015. – Útgáfa, söngur og verkstjórn.
Kórstjórn
Kvartettinn NOTA BENE
Kammerkórinn STÁSSSTOFUKÓRINN
Kórsöngur
Kór Breiðholtskirkju frá 2011
Kór íslensku Óperunnar 1993-2003 – 2010-2012
Kammerkór Dómkirkjunnar 1992-2007
Mótettukór Hallgrímskirkju 1986-1990
Hljómeyki 1992
Leikreynsla
Leikfélagið Hugleikur 2002 – Söngleikurinn Kolrassa eftir Þórunni Guðmundsdóttur í leikstjórn Jóns St. Kristjánssonar / Hlutverk: Ása
Leikfélag Akureyrar 1994 - Óperudraugurinn í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur / Hlutverk: Madame Giry
Hlutverk í eftirtöldum verkum hjá Leikfélagi Kópavogs:
-
Svört sólskin eftir Jón Hjartarson
-
Blúndur og blásýra
-
Fróði og allir hinir grislingarnir
-
Skítt með’a eftir Valgeir Skagfjörð,
-
Hinn eini sanni eftir Tom Stoppard
-
Kolrassa eftir Þórunni Guðmundsdóttur hjá leikfélaginu Hugleik
Leikfélag Kópavogs frá 1986 - Ýmis störf innan félagsins, m.a. formennska félagsins, sýningarstjórn, aðstoðarmaður leikstjóra, söngþjálfun, miðasala, leikmunir, búningasaumur og fl.
Samsöngur - hljómsveitir
Andakt - hljómsveit með tónlistarmönnum sem tóku þátt í Stjörnubjart útgáfunni, 2016-2018
Ísfólkið – Dúett með Sváfni Sigurðarsyni – Fjölbreytt efnisval, frá 2005-2009
Immanúel - Jóladagskrá með Ingibjörgu Grétu, leikkonu, des 2003
Elía e. Mendelssohn; hlutverk drengsins Kór Íslensku óperunnar í Langholtskirkju, desember 2000
Orfeus og Evridís e. Monteverdi; hlutverk Amors - Salurinn nóvember 2000
Sumartónleikaröð Stykkishólms ásamt Þórunni Guðmundsdóttur og Kristni Erni Kristinssyni, 1998
Sumartónleikaröð Kaffileikhússins ásamt Hörpu og Kristni Erni, 1998
Einu sinni var...! gömul íslensk dægurlög ásamt Hörpu Harðardóttur og Reyni Jónassyni, 1996
Listaklúbbur leikhúskjallarans ásamt Hörpu Harðardóttur, Ingveldi Ýr og Kristni Erni Kristinssyni, 1995
Dúetta tónleikar víðsvegar um landið ásamt Hörpu Harðardóttur og Kolbrúnu Sæmundsdóttur, 1994-5
Afmælistónleikar Sigfúsar Halldórssonar - ýmsir söngvarar og Jónas Ingimundarson, 1997
Tónlist fyrir alla - Heimsókn í grunn- og framhaldsskóla 1995-98. Kynningu á tónlist úr söngleikjum ásamt Hörpu Harðardóttur og Kristni Erni Kristinssyni.
Hef komið víða fram opinberlega ýmist sem einsöngvari eða í samvinnu við aðra og sungið við kirkjulegar athafnir.