top of page

Mannauðsráðgjöf - Fræðslustjóri að láni - Mannauðsstjóri til leigu

Ágústa Sigrún býður þjónustu sína inn í fyrirtæki til að aðstoða stjórnendur við að gefa mannauðsmálum aukið vægi og faglega nálgun. Greining á stöðunni og  forgangsröðun aðgerða er afurð slíkrar vinnu. Góð leið þegar vantar ferska sýn, sérfræðiþekkingu eða fleiri hendur til að koma verkefnum af stað eða málum í höfn. Mannauðsráðgjafi hefur mismunandi aðkomu, allt eftir því hvar fyrirtækið er statt hverju sinni. Þjónustan er aðlöguð þörfum og samið um hentugustu leiðina.

 

Smærri fyrirtæki velja svo oft þann kost að gera samning við sérfræðing í mannauðsmálum um að annast málaflokkinn fyrir þeirra hönd, sem mannauðsstjóri til leigu. Þetta er hagkvæm leið þegar þörf er á að samræma nálgun við ýmis mannauðstengd mál og innleiða breytingar. Stjórnendur fá stuðning og þjálfun við að taka á erfiðum málum og kynnast nýjum leiðum sem stuðla að aukinni starfsánægju.  

 

Mannauðsráðgjafi getur verið með fasta viðveru á vinnustaðnum ákveðna daga vikunnar og eða komið að innleiðingu á stefnum og framkvæmd verkefna tímabundið. Umfang og aðkoma er í samræmi við þarfagreiningu og gerir Ágústa tilboð í þá vinnu sem fyrir liggur og kynnir hugmynd að samstarfi.

 

Ágústa Sigrún hefur einnig unnið sem fræðslustjóri að láni á vegum starfsmenntasjóða stéttarfélaga. Verkefnið byggir á að lána út mannauðsráðgjafa, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun, til fyrirtækja í tiltekinn tíma. Enginn útlagður kostnaður er vegna fræðslustjórans sem kostaður er af starfsmenntasjóðunum í tiltekinn tíma. Frekari upplýsingar um verkefnið er á ÁTTIN.

Human Resources Consulting (1).png
Dæmi um verkefni Mannauðsstjóra til leigu:
  • Ráðningar og starfslok

  • Sáttamiðlun og samskipti

  • Vinnustaðagreiningar og forgangsröðun aðgerða

  • Greining fræðsluþarfa og gerð fræðsluáætlana

  • Stefnumótun, hópefli og starfsdagar

  • Gerð jafnréttisáætlana og innleiðing jafnlaunastaðals

  • Umgjörð starfsmannasamtala og frammistöðusamtöl

  • Gerð starfslýsinga og ráðningarsamninga

  • Launavinnsla og launaáætlanir

  • Innleiðing fjarvistarstefnu, samgöngustefnu, mannauðsstefnu ofl.

  • Fyrirlestrar og námskeið

bottom of page